Gildi skilmála

Þessir almennir skilmálar gilda um notkun á vefsíðunni kovarecovery.is og allri þjónustu sem þar er í boði. Með því að heimsækja vefsíðuna eða nýta sér þjónustu hennar samþykkir notandi þessa skilmála. Skilmálarnir gilda um alla notendur vefsíðunnar, nema annað sé sérstaklega tekið fram.

Upplýsingar

Netfang: kovarecovery@gmail.com

Pantanir og kaup

Allar pantanir fara í gegnum vefsíðuna og DM (Direct messages) á Instagram síðu kovarecovery.is

Viðskiptavinur ber ábyrgð á að veita réttar upplýsingar við kaup (nafn, heimilisfang, netfang o.s.frv.). 

Við staðfestingu fær viðskiptavinur tölvupóst með upplýsingum um pöntunina.

KOVA recovery áskilur sér rétt til að hafna pöntun t.d. vegna rangra upplýsinga, vöruskorts eða annarra ástæðna.

Verð og greiðslur

Öll verð eru í íslenskum krónum (ISK) og innihalda virðisaukaskatt (VSK). 

Greiðsla fer fram með greiðslukorti, debetkorti eða öðrum greiðslumöguleikum sem vefverslunin býður upp á. Verð geta breyst án fyrirvara en staðfest verð við kaup breytist ekki eftir pöntun.

Afhending og sending

Vörur eru afgreiddar innan 1–3 virkra daga, nema annað sé tekið fram.
Við tilkynnum tafir ef þær koma upp.
Við berum ekki ábyrgð á seinkun sem stafar af aðstæðum utan okkar stjórnunar (t.d. veðri, flutningsörðugleikum o.fl.).

Skil og endurgreiðslur

Við tökum við skila- og endurgreiðslubeiðnum innan 30 daga frá móttöku vöru, svo lengi sem varan er ónotuð og í upprunalegum umbúðum.
Ef varan er gölluð, vinsamlegast hafðu samband og sendu myndir – við bjóðum annaðhvort nýja vöru eða endurgreiðslu.

Persónuvernd

Við vinnum aðeins með þær persónuupplýsingar sem nauðsynlegar eru til að klára viðskipti (nafn, netfang, heimilisfang, greiðsluupplýsingar).
Við deilum aldrei upplýsingum með þriðja aðila nema þegar það er nauðsynlegt vegna afhendingar (t.d. með flutningsaðilum).

Hugverkaréttur

Allt efni á www.kovarecovery.is – þar með talið texti, myndir og lógó – er eign KOVA og má ekki nota án skriflegrar heimildar.

 

Ef þú hefur spurningar um skilmálana eða þjónustu, hafðu samband:

kovarecovery@gmail.com