Það sem þú þarft að vita um Compression Boots

 

KOVA Compression Boots styðja við náttúrulega endurheimt líkamans með markvissri loftþrýstingsmeðferð. Skórnir auka blóðflæði í fótum, hjálpa bláæðum að skila blóði aftur til hjartans og styðja við sogæðakerfið með því að losa vökvasöfnun, minnka bólgur og hreinsa úrgangsefni úr vefjum.

Með reglulegri notkun geta KOVA Compression Boots flýtt vöðvabata eftir æfingar, dregið úr harðsperrum og vöðvaþreytu, minnkað stífleika og hjálpað líkamanum að jafna sig hraðar. Betri endurheimt skilar sér í meiri orku, gæðameiri æfingum og stöðugri frammistöðu til lengri tíma.

Að auki veitir notkunin djúpa slökun og vellíðan þar sem þrýstingurinn líður eins og taktfast, djúpt nudd sem minnkar spennu í fótum eftir álag eða langan dag. KOVA Compression Boots henta bæði íþróttafólki og þeim sem finna fyrir þreytu í fótum vegna vinnu eða daglegs álags.

KOVA Compression Boots eru hjálpartæki en ekki lækningatæki. Þau henta ekki öllum og ráðlagt er að leita ráða hjá lækni áður en notkun hefst, ef notandi er með undirliggjandi sjúkdóm eða heilsufarsvandamál sem notkun tækisins gæti haft áhrif á.

Skráðu þig á póstlista

Skráðu þig og fáðu sértilboð, nýja afslætti og upplýsingar um nýjar vörur sent beint til þín.