KOVA er íslensk netverslun sem sérhæfir sig í vörum tengdum endurheimt og vellíðan. Fyrsta varan okkar, KOVA Compression Boots, eru háþróaðir compression boots sem styðja við náttúrulega endurheimt líkamans með markvissri loftþrýstingsmeðferð. Markmið KOVA er að hjálpa fólki að jafna sig hraðar, líða betur og standa sig betur – hvort sem um er að ræða íþróttir, vinnu eða daglegt líf.
Við leggjum mikla áherslu á heilsu viðskiptavina okkar og lítum á endurheimt sem ómissandi hluta af góðri frammistöðu og almennri vellíðan. KOVA Compression Boots vinna með helstu kerfum líkamans, svo sem blóðrás, sogæðakerfi og vöðvum, til að flýta bata, draga úr þreytu, minnka stífleika og stuðla að betri líðan eftir álag.
KOVA er í stöðugri þróun og framtíðarsýn okkar er að bjóða upp á fleiri vandaðar vörur sem tengjast recovery, endurheimt og heilsu. Við viljum gera faglega endurheimt aðgengilega fyrir alla sem gera kröfur til líkamans og vilja hugsa vel um heilsu sína til lengri tíma.